Kastnámskeiðin í Kórnum

Flugukastnámskeið okkar hefjast í dag frá 17:00 til 18:00.

Námskeiðin fara fram í Kórnum Kópavogi
Hægt er að smella á myndina hér til hliðar til að sjá staðsetningu Kórsins á korti.

Posted in Fréttir | Comments closed

Langar þér að fara á frítt kastnámskeið ?

Ert þú eða þekkir þú einhvern á aldrinum 10-18 ára?

Við ætlum að gefa heppnum facebook vini okkar flugukastnámskeið.
Það eina sem þú þarft að gera er að líka við Veiðiheim og svara einni laufléttri spurningu í comment á facebook.

http://www.facebook.com/Veidiheimur

Spurningin er:
Hvar fara kastnámskeið Veiðiheims fram?

Posted in Fréttir | Comments closed

Kastklúbbur Veiðiheims

Við hjá Veiðiheim ætlum á næstu dögum að setja saman Flugukastklúbb.
Okkur vantar nokkra flugukastar til að fylla grúppuna. Við ætlum að leigja íþróttasal og verður kastað í hverri viku fram á vor (veiðiseasoni). Þetta er hugsað fyrir þá sem vilja hafa aðstöðu til að bæta sig í fluguköstum bæði í stuttum sem og lengri köstum. Við munum einnig koma upp nettum kastþrautum sem menn geta æft sig á.

ATH! Ekki er um kastkennslu að ræða.

Þeir sem hafa áhuga geta sent línu á einar@veidiheimur.is

Posted in Fréttir | Comments closed

Kastnámskeið í Kórnum !

Boðið verður  upp á flugukastnámskeið í janúar, febrúar og mars.
Farið verður í öll undirstöðu atriðin ásamt því að farið verður í kastferla og auk meiri fræðslu um köstin. Námskeiðin fara fram í Íþróttarhöllinni Kórnum við Vallakór í Kópavogi.
Read More »

Posted in Fréttir | Comments closed

Fluguveiðiskólinn við Elliðavatn

Næsta sumar verður Fluguveiðiskóli Veiðiheims áfram starfræktur upp við Elliðavatn og verður þetta verður okkar þriðja sumar við vatnið og er óhætt að segja að námskeiðin hafa aldrei verið flottari!
Read More »

Posted in Fréttir | Comments closed

Gleðilega Hátið

Veiðiheimur óskar öllum fluguveiðimönnum gleðilegrar hátíðar og megi 2012 verða fengsælla en það sem er að líða.

Einnig viljum við þakka öllum þeim sem sóttu bæði námskeiðin sem og aðra viðburði á vegum Veiðiheims.

Með Jólakveðju,
Einar Guð , Rut V.  & Börkur Smári.

Posted in Fréttir | Comments closed

Veiðiheimur með F.F.F. réttindi

Veiðiheimur skellti sér til Svíþjóðar í seinustu viku
á námskeið á vegum Federation of Fly Fishers.
Námskeiðið var kastkennararéttindanámskeið, svokallað Casting Instructor Certification. Svo fór að prófinu var náð og hefur Börkur Smári nú hlotið viðurkenningu F.F.F. sem Certified Casting Instructor.

Veiðiheimur stendur nú í ströngu við að koma innranetinu okkar af stað og undirbúa námskeið vetrarins svo skráið ykkur endilega á póstlistann þar sem sendar verða út tilkynningar um komandi námskeið, fréttir og fleira.

Posted in Fréttir | Comments closed

Síðustu veiðinámskeið sumarsins

Nú hefur fluguveiðiskóli Veiðiheims
haldið síðustu námskeiðin sín í sumar.

Við héldum 3 daga námskeið dagana 9-11 ágúst og svo 5 daga námskeið dagana 15-19 ágúst sem tókust frábærlega.

Við fengum gott veður alla dagana og voru allir virkilega duglegir og áhugasamir sem gerði námskeiðin enn skemmtilegri fyrir alla.

Seinni hópurinn í vikunni sem leið endaði námskeiðið líka á ógleymanlegan hátt, en það var hann Gissur sem landaði flottum ca. 5 punda laxi í vatninu á seinasta degi námskeiðsins! 2 flugulaxinn hjá honum í sumar.

Við hjá Veiðiheim viljum þakka öllum þeim sem komu á námskeið hjá okkur í sumar kærlega fyrir okkur, og við vonum að þið hafið átt frábært veiðisumar.

Fleiri myndir frá námskeiðunum má sjá með því að smella á titil fréttarinnar.
Read More »

Posted in Uncategorized | Comments closed

Konukvöld

Í næstu viku ætlar Veiðiheimur að auka við
námskeiðaflóruna og halda margumbeðin konukvöld.

Námskeiðið verður með svipuðu sniði og kvöldskólinn okkar nema eins og nafnið gefur til kynna, eingöngu fyrir konur.

Þetta er því kjörið tækifæri fyrir vinkonuhópa eða saumaklúbba sem og einstaklinga til að koma og læra undirstöðuatriði flugukasta, fluguhnýtinga og fluguveiða almennt.

Skráning fer fram í síma 666-1990 og á síðunni okkar.

Smelltu hér til að skrá þig <<skráning>>

Posted in Fréttir | Comments closed

Komandi námskeið

Veiðiheimur er kominn úr veiðifríinu
og hefur notið veiðisumarsins til hins ýtrasta. Við erum búin að fara
vítt og breitt um landið að veiða
og veiðiguðirnir búnir að vera okkur hliðhollir í langflestum tilfellum.

En nú ætlum við að halda námskeið, fyrst nú 9-11 ágúst þar sem við höldum 3 daga fluguveiðiskóla fyrir krakka og kvöldskóla fyrir fullorðna. Fullt er á námskeiðin í þessari viku en enn er laust á 5 daga fluguveiðiskólka í næstu viku, fyrir hádegi.

Smelltu hér til að skrá þig <<skráning>>

Posted in Fréttir | Comments closed
  • Póstlisti Veiðiheims

    Skráðu þig á póstlistann okkar


  • Fylgstu með okkur á facebook

  • Næstu námskeið:

    Fluguveiðiskólinn - 3 daga
    6 - 8 júní 8:00 - 12:00
    6 - 8 júní 13:00 - 17:00
    Námskeiðisgjald 9.600.-

    Fluguveiðiskólinn - 5 daga
    11 - 15 júní 8:00 - 12:00
    11 - 15 júní 13:00 - 17:00
    18 - 22 júní 8:00 - 12:00
    18 - 22 júní 13:00 - 17:00
    Námskeiðisgjald 15.600.-

    Kvöldskólinn
    6 - 8 júní 18:00 - 21:00
    11 - 13 júní 18:00 - 21:00
    18 - 20 júní 18:00 - 21:00
    Námskeiðisgjald 12.500.-

    .................................
    Bókanir fara fram í síma 692-2376 og einnig hér á Veidiheimur.is undir skráning.

  • Gallerí flugur